„Við komum með sólina með okkur“

„Við komum með sólina með okkur,“ segja þær Liz, Tina, Lisa og Carla sem eru komnar frá Englandi til að sletta úr klaufunum á Secret Solstice hátíðinni sem nú fer fram í Laugardalnum. Gestir eru farnir að streyma á svæðið og þeir eru í góðum gír ef marka má viðmælendur mbl.is.

Emma, Katie, Connor og Ashley koma frá Skotlandi en sú síðastnefnda var á fyrstu hátíðinni og líkaði svo vel að hún fékk vini sína til að koma með sér í þetta skiptið. Fólk virðist ekki þekkja íslenska tónlist en er þó spennt að sjá hvað íslenskir tónlistarmenn koma til með að reiða fram.

mbl.is var í Laugardalnum í dag.

Beðist er velvirðingar á textaleysi í myndskeiðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert