Viðar hættir sem Útvarpsleikhússtjóri

Viðar Eggertsson
Viðar Eggertsson

Ríkisútvarpið leitar að nú að nýjum Útvarpsleikhússtjóra eftir að Viðar Eggertsson hefur ákveðið að láta af starfanum. Hann hefur stýrt Útvarpsleikhúsinu í nær 8 ár.

Viðar Eggertsson hefur gegnt starfi Útvarpsleikhússtjóra síðan í byrjun árs 2008, en telur að nú sé kominn tími til þess að einhver annar taki við stjórn Útvarpsleikhússins. Hann mun hverfa til annarra verkefna tengdum menningu og listum á Rás 1.

Í tilkynningu frá RÚV segir að undir stjórn Viðars hafi Útvarpsleikhúsið blómstrað og unnið til bæði innlendra og alþjóðlegra verðlauna. Viðar hefur lagt sérstaka rækt við íslenska leikritun og bryddað upp á ýmsum nýjungum þar sem kannaðir hafa verið möguleikar hljóðheimsins. Þá hefur hann haft forgöngu um að jafna kynjahlutfall leikskálda og leikstjóra svo eftir hefur verið tekið.

„Það hefur verið einstaklega skemmtileg og spennandi áskorun að stjórna Útvarpsleikhúsinu þennan tíma sem ég hef starfað. Áskorunin var ekki síst fólgin í því að finna Útvarpsleikhúsinu nýja rödd á erfiðum tímum fjármálahrunsins. Mótlæti skapar líka ný tækifæri ef mótlætið er litið þeim augum,“ er haft eftir Viðari í tilkynningu. „En nú er rétt að nýr og ferskur andi blási um hina síungu listgrein Útvarpsleikhúss og mun ég glaður afhenda nýjum stjóra keflið sem væntanlega mun finna nýjar og enn meira spennandi sóknarmöguleika fyrir þetta einstaka leikhús".

Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, segir Viðar hafa unnið frábært starf í Útvarpsleikhúsinu undanfarin átta ár. „Viðar hefur haldið úti afar metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá. Við erum mjög ánægð að hann skuli halda áfram að sinna störfum fyrir Rás 1 þótt hann segi skilið við Útvarpsleikhúsið.“

Starf Útvarpsleikhússtjóra verður auglýst laust til umsóknar um næstu helgi. Í starfinu felst að marka Útvarpsleikhúsinu stefnu til náinnar framtíðar, huga að sóknarfærum til að efla listgreinina sjálfa og nýta þau tækifæri sem eru í sjónmáli til að vinna henni veg og ekki síst að koma auga á ný. Verkefni Útvarpsleikhússins þurfa að vera í stöðugri mótun og takast á við samtímann hverju sinni, um leið og byggt er á því 85 ára starfi sem unnið hefur verið, og ekki síst að vera í fararbroddi íslensks leikhúslífs og útvarpslistar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert