Flestir í ferðaþjónustu

Lítið atvinnuleysi var meðal iðnaðarmanna árið 2014 samanborið við árið …
Lítið atvinnuleysi var meðal iðnaðarmanna árið 2014 samanborið við árið 2009. Síðustu tvö ár hafa flestir fengið atvinnu hér á landi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Mest hefur fækkað í hópi bótaþega með grunnskólamenntun frá því árið 2009 þegar atvinnuleysi var mest í kjölfar efnahagshruns.

Tæplega 7.800 atvinnulausir voru með grunnskólamenntun árið 2009 þegar rúmlega 15.100 manns voru á skrá hjá Vinnumálastofnun. Síðan þá hefur grunnskólamenntuðum fækkað um tæplega fimm þúsund manns á skránni.

Að sögn Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun, helgast þetta af uppgangi í ferðaþjónustu. „Nánast öll störf sem urðu til 2013 og að hluta árið 2014 voru í ferðaþjónustu sem er mannaflsfrek grein sem ekki krefst menntunar nema að litlu leyti,“ segir Karl í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert