Börðust með hnífum á Akureyri

Lögreglan á Akureyri handtók tvo menn í hádeginu.
Lögreglan á Akureyri handtók tvo menn í hádeginu. mbl.is/Þórður

Lögreglan á Akureyri handtók í dag tvo menn eftir að þeir gripu til hnífa á heimili annars þeirra í hádeginu í dag. Mennirnir eru góðkunningjar lögreglu og búa í sama húsi, hvor í sinni íbúðinni.

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, staðfesti við mbl.is að mennirnir hefðu lent í átökum. Meiðsli þeirra væru þó minniháttar. „Þeir hlutu báðir djúpa skurði en mikilvæg líffæri sködduðust ekki.“

Tildrög árásarinnar eru óljós og er málið í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert