Manninum enn haldið sofandi

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Eggert

Vélhjólamanninum sem slasaðist á Holtavörðuheiði á laugardaginn er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn, sem er þungt haldinn, var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur. 

Þyrl­an var kölluð út upp úr kl. 16 en stuttu eft­ir flug­tak var beðið um þyrlu vegna bráðaveik­inda við Gull­foss. Þyrlunni var snúið þangað en áhöfn kölluð út á aðra þyrlu til að fara í slysið á Holta­vörðuheiði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert