Ferðamönnum fækkar frá Skandinavíu

Erlendir ferðamenn skoða sig um við Höfða
Erlendir ferðamenn skoða sig um við Höfða mbl.is/Golli

Þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fjölgað um 28% í júní á milli ára hefur heimsóknum Skandinava fækkað.

Heimsóknum frá Danmörku, Svíþjóð og Noregi fækkaði verulega milli ára og Kínverjar voru fjölmennari en frændþjóðirnar hver fyrir sig, segir í frétt Túrista.

Á fyrri hluta ársins flugu 517 þúsund erlendir farþegar frá Keflavíkurflugvelli samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Aukningin frá sama tíma í fyrra nemur 28,7 prósentum en ferðamönnum frá Norðurlöndunum fjölgaði aðeins um 2,8 prósent.

Til samanburður var aukningin frá N-Ameríku ríflega 40 prósent. Í júní síðastliðnum varð hins vegar verulegur samdráttur í komum ferðamanna frá Skandinavíu. Þá fækkaði sænskum ferðamönnum hér á landi um 16,7 prósent, Dönum um 13,6 prósent og Norðmönnum um 10,2 prósent. Samtals komu hingað 2.223 færri skandinavískir ferðamenn en á sama tíma í fyrra. Fjöldi Finna stóð í stað.

„Á sama tíma og ferðamönnum frá frændþjóðunum fækkar hefur orðið sprenging í komum Kínverja. Það sem af er ári hefur þeim fjölgað um 78,2 prósent og samtals hafa um 17 þúsund kínverskir ferðamenn heimsótt Ísland í ár. Í júní fjölgaði kínverskum ferðamönnum enn meira eða um 83,5 prósent, segir í frétt Túrista.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert