Reykjavík kaupir Geldinganes, Gufunes og Eiðsvík

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, við undirritunina …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, við undirritunina í dag.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, skrifuðu í dag undir kaupsamninga Reykjavíkurborgar á þrem lóðum Faxaflóahafna sf. Þetta eru lóð Áburðaverksmiðjunnar í Gufunesi, land á Geldinganesi og land í Eiðsvík. Kaupverðið er tæplega 350 milljónir króna, en ekki hefur verið ákveðin nýting á landinu enn. Auglýst hefur verið eftir hugmyndum um nýtingu á svæðinu sem auðga nálæga byggð og umhverfi.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að lóð Áburðarverksmiðjunnar sé 200.172 fermetrar að stærð, ásamt öllu því sem henni fylgir þar með talin óskráð landfylling vestan lóðarinnar sem er 2.062 fermetrar að stærð og aðrar landfyllingar sem gerðar hafa verið við sjávarsíðu lóðarinnar. Kaupverð hins selda landsvæðis er 219,45 milljónir. 

Við Geldinganes er borgin að kaupa 70 hektara landssvæði sem þýðir að nesið er nú allt í eigu Reykjavíkurborgar. Kaupverð er 103,47 milljónir. Þá voru keyptar tvær lóðir í Eiðsvík, samtals 21.300 fermetrar og er kaupverð þeirra 23,3 milljónir. 

Ekki er ljóst hver nýting á landinu verður en á vegum borgarinnar stendur yfir samkeppni um framtíðarskipulag Gufuness í Grafarvogi. Reykjavíkurborg hefur auglýst eftir hugmyndum um nýtingu lands og mannvirkja á svæðinu og er skilafrestur til 18. ágúst næstkomandi. 

Tilgangurinn með fyrirhugaðri samkeppni er að stuðla að góðu heildarskipulagi sem tryggir líflega og skynsamlega nýtingu svæðisins í samræmi við markmið Aðalskipulags og er til þess fallin að auðga nálæga byggð og umhverfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert