Franskir dagar í tuttugasta sinn

Jón Ólafur Þorsteinsson lék á harmonikku við athöfnina og franskir …
Jón Ólafur Þorsteinsson lék á harmonikku við athöfnina og franskir sjóliðar stóðu vörð. mbl.is/Albert Kæmp

Franskir dagar á Fáskrúðsfirði voru haldnir með pompi og prakt um helgina, nú í tuttugasta sinn.

Franska skútan Belle Poule kom til hafnar þar til að votta látnum frönskum sjómönnum virðingu, en sjóliðar stóðu heiðursvörð við minningarathöfn í kirkjugarðinum. Fulltrúar heimabæjar látnu sjómannanna, Graveline, voru viðstaddir hátíðina og lögðu blómsveig að minnisvarða um þá í garðinum. Þétt dagskrá var í boði yfir helgina fyrir alla aldurshópa.

Aðrar bæjarhátíðir sem fram fóru um helgina voru vel sóttar og fóru vel fram, án afskipta lögreglu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert