Par í annarlegu ástandi með stolin skráningarnúmer

mbl.is/Þórður

Kortér yfir tólf var lögreglu tilkynnt um par í annarlegu ástandi í kyrrstæðum bíl fyrir utan verslun í hverfi 210.

Þegar lögreglu bar að kom í ljós að bíllinn var á röngum skráningarnúmerum og reyndust skráningarmerkin stolin. Var parið frjálst ferða sinna að skýrslutöku lokinni.

Klukkan kortér í tvö í dag var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna karlmanns sem var búinn að koma sér fyrir á tröppum fyrir utan íbúðarhús í hverfi 105.

Maðurinn var í talsvert annarlegu ástandi þegar lögreglu bar að og gat hann ekki gert grein fyrir ferðum sínum. Var hann vistaður í fangaklefa og verður þar þangað til víman rennur af honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert