Vann eignaspjöll á héraðsdómi

Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur mbl.is/Hjörtur

Lögreglan handtók mann í annarlegu ástandi í Austurstræti um tvöleytið í nótt. Maðurinn er grunaður um eignaspjöll en þegar lögreglu bar að var hann með úðabrúsa að skrifa á veggi Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann er grunaður um frekari eignaspjöll en hann gistir fangageymslur lögreglunnar. Lögreglan mun ræða við manninn þegar hann verður í ástandi til þess.

Þremur tímum fyrr höfðu verið unnin eignaspjöll á lögreglubifreið þar sem bifreiðin stóð á bifreiðastæði við Hverfisgötu meðan lögreglumenn voru að sinna útkalli. Þar hafði verið máluð áletrun með úðabrúsa á bifreiðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert