Reyndi að ræna viðskiptavin banka

Maðurinn var handtekinn nokkru seinna.
Maðurinn var handtekinn nokkru seinna. mbl.is/Ómar Óskarsson

Á fjórða tímanum í dag var tilkynnt um að reynt hafi verið að ræna viðskiptavin sem var að ganga út úr útibúi Íslandsbanka í Þarabakka. Stuttu seinna var maður handtekinn grunaður um verknaðinn og er hann nú vistaður í fangageymslu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar.

Í austurbæ Reykjavíkur var tilkynnt um eignaspjöll hjá sýslumanninum í Reykjavík, en þar á ferðinni óánægður viðskiptamaður sem auk þess að brjóta rúðu lét ófriðlega.  Var handtekinn er lögregla kom á staðinn og fluttur á lögreglustöð til skýrslutöku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert