Slasaðist á fæti við Glym

mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir voru kallaðar út fyrir um klukkustund þegar tilkynning barst um slasaða göngukonu á leiðinni upp með fossinum Glym í Hvalfirði. Björgunarsveitir, ásamt sjúkraflutningamönnum, komu að konunni, sem er meidd á fæti, um hálfri klukkustund eftir að aðstoðarbeiðnin barst.

Var  búið um hana og verið er að flytja hana niður að hliði í Botnsdal þar sem sjúkrabíll bíður, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert