HB Grandi hagnast um 3,3 milljarða á fyrri helmingi árs

HB Grandi
HB Grandi mbl.is/Þórður

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2015 námu 110,4 milljónum evra €, samanborið við 87,3 milljónir árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 31,3 milljónir evra eða 28,3% af rekstrartekjum, en var 18,7 milljónir, 21,4%, árið áður. Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 0,02 milljónir evra, en voru neikvæð um 1,3 milljónir á sama tíma árið áður.

Hagnaður HB Granda var því 3,3 milljarðar á fyrri hluta ársins.

Rekstrartekjur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi voru 57,1 milljónir evra. EBITDA félagsins var 9,9 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 4,9 milljónir evra. ​Handbært fé frá rekstri nam 18,2 milljónunm evra á fyrri árshelmingi.

Innflutningsbann sjávarafurða til Rússlands hefur mikil áhrif á markaðsstarf félagsins og starfsemi þess, sérstaklega á Vopnafirði gangi það að fullu eftir. Um 17% tekna félagsins komu frá rússneskum aðilum árið 2014. Erfitt er að meta fjárhagsleg áhrif þessa á HB Granda hf en gróflega áætlað munu tekjur félagsins lækka um u.þ.b. 10-15 milljónir evra á ársgrundvelli. Árið 2014 námu tekjur félagsins 215 milljónum evra. Félagið á nú um 3,2 milljónir evra í útistandandi kröfum í Rússlandi.

Áhrif hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 3,0 milljónir evra, en voru jákvæð um 1,8 milljónir árið áður. Helstu skýringar neikvæðrar afkomu hlutdeildarfélagsins Deris eru erfiðleikar í laxeldi í Síle. Hagnaður fyrir tekjuskatt var 26,5 milljónir evra og hagnaður tímabilsins var 22,0 milljónir.

Heildareignir félagsins námu 391,2 milljónir evra í lok júní 2015. Þar af voru fastafjármunir 296,9 milljónir og veltufjármunir 94,3 milljónir. Eigið fé nam 222,3 milljónum vera og eiginfjárhlutfall í lok júní var 56,8%, en var 59,7% í lok árs 2014. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 169,0 milljónir evra.

Handbært fé frá rekstri nam 18,2 milljónum evra á tímabilinu, en nam 5,8 milljónum á sama tíma fyrra árs. Fjárfestingarhreyfingar námu 27,8 milljónum, þar af nam fjárfesting vegna nýrra skipa 16,1 milljónum evra. Fjármögnunarhreyfingar námu 6,6 milljónum evra og var lántaka umfram afborganir langtímalána 4,6 milljónir. Handbært fé lækkaði því um 16,2 milljónir evra og var í lok júní 8,6 milljónir.

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrri helming ársins 2015 (1 evra = 148,64 kr) verða tekjur 16,4 milljarðar króna, EBITDA 4,6 milljarður og hagnaður 3,3 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2015 (1 evra = 146,84 kr) eru eignir samtals 57,4 milljarðar króna, skuldir 24,8 milljarðar og eigið fé 32,6 milljarðar.

Venus NS 150 kom til landsins lok maí og hefur skipið staðist allar væntingar. Skipið er fyrsta skipið af fimm sem samið hefur verið um smíði á við tyrknesku skipasmíðastöðina Celiktrans Deniz Insaat Ltd.

Á fyrri árshelmingi ársins 2015 var afli skipa félagsins 24 þúsund tonn af botnfiski og 88 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst klukkan 08:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.

Árshlutareikningur var samþykktur á stjórnarfundi HB Granda hf. 26. ágúst 2015. Árshlutauppgjör HB Granda hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Árshlutauppgjörið hefur verið kannað af endurskoðendum félagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert