Þriggja bíla árekstur á Miklubraut

Tvöföld aftanákeysla varð á Miklubraut í morgun. Myndin er úr …
Tvöföld aftanákeysla varð á Miklubraut í morgun. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.

Þrír ökumenn og ungbarn voru flutt til skoðunar á slysadeild eftir árekstur þriggja bíla á Miklubraut við Ártúnsbrekku í morgun. Enginn þeirra slasaðist alvarlega en að minnsta kosti tveir bílanna eru þó nokkuð skemmdir eftir áreksturinn.

Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu átti slysið sér stað rétt fyrir kl. 9 í morgun. Það bar að með þeim hætti að fólksbíl var ekið aftan á jeppling sem kastaðist aftan á annan fólksbíl sem var á undan honum á Miklubraut á leiðinni til vesturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert