37% makrílsins í íslenskri lögsögu

Á makrílveiðum.
Á makrílveiðum. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Aldrei hefur mælst meira af makríl í íslenskri efnahagslögsögu en í nýloknum sameiginlegum makrílleiðangri Íslendinga, Færeyja, Norðmanna og Grænlendinga. 37% makrílstofnsins eru í íslenskri lögsögu og í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir að enginn vafi leiki á um að þessi niðurstaða styrki stöðu Íslands í komandi samningaviðræðum um hlut Íslands í makrílveiðum.

Heildarvísitala makríls á svæðinu sem mælingin náði yfir var metin um 7,7 milljón tonn, þar af voru tæp 2,9 milljón tonn innan íslenskrar efnahagslögsögu, að því er fram kemur í tilkynningunni.

„Heildarvísitalan í ár er 1,3 milljón tonnum lægri en á síðasta ári en þá var hún sú hæsta síðan rannsóknirnar hófust árið 2007. Vísitala makríls innan íslenskrar lögsögu hefur hins vegar aldrei verið eins há og í ár, en síðustu þrjú ár var vísitalan þar um 1,6 milljón tonn.

Mesta þéttleika makríls var að finna suður af Íslandi og náði útbreiðslan þar sunnar en áður hefur sést. Heildarstærð svæðisins sem kannað var í ár var lítið eitt stærra en á síðasta ári en eins og undan farin ár, var aðeins lítill hluti lögsögu Evrópusambandsins kannaður.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert