Frítt í leið 15 á laugardag

mbl.is/Ómar

Frítt verður í leið 15, sem ekur á bæjarhátíð Mosfellsbæjar „Í túninu heima“ nk. laugardag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Strætó.

Mikið er um að vera í bænum á hátíðinni sem stendur yfir í þrjá daga. Hátíðin er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hátíðin hefst formlega á föstudagskvöldinu með skrúðgöngu, varðeld og brekkusöng í Álafosskvos, segir í tilkynningu.

Strætó hvetur gesti hátíðarinnar til þess að nýta sér ókeypis strætóferðir á hátíðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert