Bakað fyrir björgunarsveitir

Bakaranemar og kennarar úr MK kynna brauðið fyrir björgunarsveitafólki í …
Bakaranemar og kennarar úr MK kynna brauðið fyrir björgunarsveitafólki í Gróubúð. Ljósmynd/Sigurður Ó. Sigurðsson/Landsbjörg

Í gær var skrifað undir samstarfsverkefnið Landsbrauð, milli Slysavarnafélagsins Landsbjargar, bakara landsins og Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar sem heldur utan um framkvæmdina. Verkefnið felst í því að þann 1. september verður Landsbrauðið sett á markað og verður til sölu í bakaríum um land allt.  Slysavarnafélagið Landsbjörg fær 30 kr. af hverju seldu brauði í sinn hlut og er reiknað með að það muni skila félaginu umtalsverðum tekjum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Um er að ræða trefjaríkt brauð með höfrum, byggi og rúgi og er það von þeirra sem að átakinu koma að því verði vel tekið af almenningi og nái fótfestu sem fastur liður í heimilisinnkaupum fjölskyldunnar. Átakið er einnig liður í slysavörnum því á umbúðir brauðanna eru prentuð forvarnaráð sem allir ættu að þekkja og kunna.

Undirritun samningsins fór fram í Gróubúð, húsnæði Björgunarsveitarinnar Ársæls og Slysavarnadeildarinnar í Reykjavík. Bakaranemar og kennarar úr Menntaskólanum í Kópavogi færðu þar björgunarsveitafólki nýbökuð Landsbrauð til smökkunar. Björgunarsveitafólk þarf að vera vel nestað þegar farið er í lengri útköll og má gera ráð fyrir að Landsbrauðið verði í mörgum bakpokum þeirra á komandi vetri.

Við þetta tilefni fagnaði Smári Sigurðsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, samstarfinu. „Það rennir styrkari stoðum undir starfsemi félagsins og eininga þess eftir annasöm misseri undanfarið en ekki síður þá eflir það forvarnastarf og upplýsingagjöf með skilaboðum á umbúðum. Slysavarnafélagið Landsbjörg og Ölgerðin hafa áður átt í farsælu samstarfi og við fögnum þessu framhaldi á því,“ er haft eftir honum í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert