Ekkert Hótel mamma um helgina

Af Facebook-síðu viðburðarins

„Við áttum ekki von á að fá svona góð viðbrögð,“ segir Rúnar Geir Guðjónsson annar skipuleggjenda „Lost in the Lava  – Survival Camp“ á vegum Skátahreyfingarinnar sem fram fer um helgina í fyrsta sinn. Aðeins 20 þátttakendur komast að og þó fyrirvarinn hafi verið stuttur var næstum því orðið fullt í óvissuverðina í gærkvöldi. Það er því óhætt að segja að mikill áhugi sé fyrir því að týna sér í skátunum.

Gengið verður um Reykjanesskaga og eina sem þátttakendur fá að vita er að upphafs og endapunktur er skátaheimilið Hraunbyrgi í Hafnarfirði og að gengnir verða rúmir 60 km þá þrjá daga sem viðburðurinn stendur. Markmiðið er að þátttakendur kynnist enn betur eigin styrk og eiginleikum, segir í fréttatilkynningu frá Skátunum. 

Fjölmargar þrautir bíða þátttakenda sem þurfa að rata með áttavita, komast yfir vötn, finna skýli og sjá sér fyrir mat. Þrautirnar reyna á hæfileika hvers og eins, sem og samvinnu hvers flokks, en gönguhóparnir verða fjögurra manna. Þeir verða ræstir með 20 mínútna millibili í dag eftir kl. 16. 

Þátttakendur eru á aldrinum 15–25 ára og tilbúnir til að láta reyna á þolrifin. Gengið er úr skugga um að þeir hafi reynslu af útivist eins og þar telur hátt í mati ef þeir hafa tekið þátt vetraráskorun skáta og öðrum skátamótum og útilegum. „Þeir verða að geta gengið langar vegalengdir án þess að hirða um drullu á fötunum og vatn í skónum sínum,“ segir í upplýsingablaði.

Flokkarnir verða með talstöðvar og GPS-sendi. Þannig vita skipuleggjendur hvar flokkarnir eru og þeir geta haft samband ef eitthvað kemur uppá. 

Hvorki verður leyft að koma með mat að heiman né kaupa hann á leiðinni. Ef þátttakendum verða á þau mistök að mæta með mat neyðast þeir til að borða hann áður en lagt er af stað eða skilja hann eftir. Það er því óhætt að segja að óvissan í þeim efnum fái að hvíla yfir þátttakendum, en ljóst er að hér verður ekkert Hótel mamma, segir í fréttatilkynningu.

Hverjum gönguflokki er gert að finna sér skýli eða skjól þegar komið er í náttstað. Harðræðið er þó ekki algert því útilegudýna og svefnpoki er á búnaðarlistanum.

Sjálfboðaliði frá Rúmeníu með ferska vinda

Amalia Bohateret, sem er hér á landi sem sjálfboðaliði í tengslum við Erasmus, er hvatamaður að þessum leik. Hún er skáti frá Rúmeníu og hefur skátafélagið Hraunbúar í Hafnarfirði notið krafta hennar í sumar og áfram inn í veturinn því hún verður hér fram í desember.

Amalia hefur áður skipulagt og tekið þátt í slíkum viðburðum og í ljósi sinnar reynslu stakk hún upp á því að boðið yrði upp á slíkan viðburð hérlendis og var því vel tekið. Þó enginn fái að vita leiðina er Amalia búin að ganga hana og sannreyna að hægt er að komast leiðina á tilskyldum tíma, en þetta verður töff. 

Facebook-síða viðburðarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert