Keilumót Kíkt í skúrinn á þriðjudag

Vel má vera að fornbílar keppenda muni prýða bílastæði Egilshallar. …
Vel má vera að fornbílar keppenda muni prýða bílastæði Egilshallar. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þess var ranglega getið í Morgunblaðinu í dag að keilumót sjónvarpsþáttarins Kíkt í skúrinn færi fram í Egilshöll í Reykjavík í kvöld kl. 19. Hið rétt er að mótið verður haldið þriðjudaginn 1. september nk. og hefst kl. 19.

Í Egilshöll munu etja kappi fjögurra manna lið frá a.m.k. 16 fornbílaklúbbum en þetta mun vera í fyrsta sinn sem klúbbarnir koma saman.

Kíkt í skúrinn verður á staðnum til að fanga stemninguna, og mun að auki kynna aðra þáttaröð sem verður verður sýnd á sjónvarpsstöðinni Hringbraut fram að áramótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert