Stefnuræðu forsætisráðherra hliðrað til

Frá þingsetningu á Alþingi.
Frá þingsetningu á Alþingi. mbl.is/Ómar

Stefnuræðu forsætisráðherra í kjölfar þingsetningar, þriðjudaginn 8. september nk., verður flýtt í ár vegna leikjadagskrár íslenska karlalandsliðsins í körfubolta á evrópumeistaramótinu í næstu viku.

Hefðbundið er að forsætisráðherra flytji ræðuna daginn eftir, en í ár verður hún flutt að kvöldi þriðjudags. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir ástæðuna vera útsendingar Ríkisútvarpsins frá mótinu.

„Að þessu sinni verður þingið sett klukkan hálfellefu um morguninn sem er svolítið óvenjulegt. Stefnuræða forsætisráðherra verður að kvöldi þingsetningardagsins, sem er líka óvenjulegt. Það lá fyrir ósk frá Ríkisútvarpinu um það að við færðum þessar tímasetningar aðeins til. Til að koma til móts við það hliðraði þingið til,“ segir hann í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert