Bílvelta í Lóni

Höfn í Hornafirði
Höfn í Hornafirði Photo: Sigurður Bogi Sævarsson

Einhver slys urðu á fólki er bifreið valt við Þorgeirsstaði í Lóni á tíunda tímanum í gærkvöldi, að sögn lögreglu á Höfn í Hornafirði.

Lögreglan hafði ekki upplýsingar um meiðsl fólksins annað en að þau væru ekki alvarleg. Þrennt var í bifreiðinni er slysið varð. Tildrög slyssins eru í rannsókn en bifreiðin er ónýt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert