25 Íslendingar keppa í Barcelona

Það er mikil stemming meðal íslensku keppendanna í Barcelona
Það er mikil stemming meðal íslensku keppendanna í Barcelona Svava Björnsdóttir

 Alls taka 25 Íslendingar þátt í keppni í járnkarli (Ironman) í Barcelona um helgina. Þetta er fjölmennasti hópur Íslendinga sem hefur tekið þátt í keppni sem þessari á erlendri grund.

Keppnin hefst klukkan8:45 að staðartíma í fyrramálið en 22 karlar og þrjár konur eru íslenska hópnum.

Að sögn Svövu Bjarnadóttur, sem er úti með hópnum, er mikil stemming í hópnum sem hefur verið á keppnissvæðinu síðastliðna daga og undirbúið sig andlega og líkamlega. Hún segir mikla reynslubolta vera hér á ferð og sá sem hafi oftast keppt eigi sjö járnkarla að baki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert