Philharmonia Orchestra spilar í Hörpu

Ljósmynd/ Harpa

Í ár eru liðin 30 ár frá því Philharmonia Orchestra, undir stjórn Vladimirs Ashkenazy, hélt tónleika í Royal Festival Hall í London til þess að safna fyrir tónlistarhúsi Íslendinga.Meðal gesta á tónleikunum árið 1985 voru frú Vigdís Finnbogadóttir, Charles prins af Wales og Lafði Díana og gaf hljómsveitin allt fé sem safnaðist til byggingar tónlistarhúss á Íslandi. Ári fyrr hafði Philharmonia verið fyrsta breska sinfóníuhljómsveitin til að leika hérlendis, á tvennum tónleikum í Laugardalshöll, en eftir ferðina þótti ljóst að þörf væri á góðu tónleikahúsi á Íslandi. 

Frétt mbl.is: „Ógleymanleg stund“

Philharmonia Orchestra má með sanni kalla þjóðarhljómsveit Breta. Hljómsveitin er leiðandi hvað varðar gæði í flutningi, tónlistarfræðslu, frumleika í að nálgast áhorfendur og í notkun nýrra miðla. Hún vinnur reglulega og náið með ástsælustu hljómsveitarstjórum og einleikurum heims. Philharmonia Orchestra, undir handleiðslu hljómsveitar- og tónlistarstjórans Esa-Pekka Salonen, er þungamiðja í bresku tónlistarlífi og leiðandi á alþjóðlega vísu.

Á tónleikunum í Hörpu mun Philharmonia Orchestra skarta sínu fegursta. Þar mun tékkneski stjórnandinn Jakub Hrůša stjórna tveimur vinsælum tékkneskum verkum: Forleik að óperunni Selda brúðurin eftir Smetana og hinni mögnuðu sjöundu Sinfóníu Dvořáks. Rússneski píanistinn Daniil Trifonov slær svo botninn í tónleikana með öðrum píanókonserti Rachmaninovs, einu  vinsælasta tónverki allra tíma. Í tilkynningu frá Hörpu segir að enginn áheyrandi ætti að fara út ósnortinn eftir hátíðartónleika Philarmonia Orchestra í Eldborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert