Lést á sjúkrahúsi

mbl.is/Þórður

Lögreglan á Vesturlandi segir að karlmaður á sextugsaldri sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás á föstudag hafi látist á gjörgæsludeild Landspítalans í dag. Karlmaður á fertugsaldri situr nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins, grunaður um manndráp.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Þar segir, að lögreglan hafi verið kölluð að húsi á Akranesi sl. föstudag ásamt sjúkraliði þar sem tilkynnt hafði verið um meðvitundarlausan mann og líklega væri um hengingu að ræða. Á vettvangi hafi verið vitni sem kom að og hafði hafið endurlífgun.

„Sá meðvitundarlausi, maður á sextugsaldri, var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem hann var lagður inn á gjörgæslu og haldið sofandi í öndunarvél. Hann lést á síðdegis í dag. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu,“ segir lögreglan í tilkynningu.

Þá segir, að við komu lögreglu og sjúkraliðs á staðinn hafi annar maður, á fertugsaldri, verið á vettvangi og var hann handtekinn skömmu síðar grunaður um tilraun til manndráps.

„Sá var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. október í Héraðsdómi Vesturlands og var sá úrskurður kærður til Hæstaréttar sem hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands.

Lögreglan á Vesturlandi rannsakar málið með stuðningi tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu lögreglu. Hún segir ennfremur að rannsókn málsins miði vel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert