Stálu nokkrum fjölda úra

mbl.is/Þórður

Tveir menn sem sjónarvottar sáu brjóta sér leið inn um glugga skartgripaverslunar við Laugaveg eru enn ófundnir, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir stálu þó nokkrum fjölda úra. Lögregla gat ekki veitt upplýsingar um hversu miklu hefði verið stolið.

Innbrotið átti sér stað einhvern tímann eftir miðnætti en vitni voru að því. Tvímenningarnir höfðu á brott með sér úr sem geymd voru í glugga verslunarinnar. Lögreglan gat heldur ekki greint frá því um hvaða verslun væri að ræða.

Fyrri frétt mbl.is: Brotist inn í skargripaverslun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert