Bætir örugglega ekki stöðu mína segir Illugi

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra mbl.is/Árni Sæberg

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra telur að Orku Energy-málið muni örugglega ekki  bæta hans stöðu en hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að svara ekki spurningum fjölmiðla varðandi tengsl sín við fyrirtækið og stjórnarformann þess, Hauk Harðarson. Það sem meðal annars hefur verið rætt um er að Illugi og eiginkona hans seldu Hauki íbúð sína og leigja hana síðan af Hauki. Þetta gerðu þau vegna mikillar skuldsetningar. 

Í viðtali við Fréttablaðið í dag segir hann að Haukur sé einn af sínum nánustu vinum. „Það er ekkert óeðlilegt að það sé spurt að þessu, en já, það er svo. Þess vegna var ég ekkert að selja Orku Energy íbúðina okkar hjóna. Ég seldi þessum vini mínum, hann keypti hana og ég afhenti í staðinn þessa eign. Síðan var gerður með okkur samningur um húsaleiguna. Sá samningur nær til áramóta núna. Og nú erum við hjónin að leita okkur að nýrri íbúð til að kaupa. Og þið ætlið ekkert að kaupa gömlu íbúðina aftur? „Nei, þó okkur langi um margt til þess. Okkur líður vel þarna og stelpan okkar þekkir ekkert annað. En ég verð að segja alveg eins og er að það er komið óbragð í munninn á manni með þetta mál allt saman, svo það hentar ágætlega að skipta um stað. Við erum ekki stór fjölskylda og þurfum ekki mikið pláss,“ segir í viðtali við Illuga í Fréttablaðinu í dag.

Blaðamenn Fréttablaðsins spyrja Illuga út hvort það sé eitthvað til í því að hann hafi gert Orku Energy óeðlilega greiða í starfi þínu sem ráðherra?

„Nei, það er fráleitt og hérna vil ég biðja menn að staldra aðeins við. Það er svo að ráðherrar í síðustu ríkisstjórn komu margoft að málum þessa fyrirtækis með sama hætti og ég. Kynntu það, sátu fundi með þessu fyrirtæki og fulltrúum frá Kína. Fyrir því er sú eina ástæða að þarna undir eru miklir íslenskir hagsmunir. Fyrirtækið starfar sjálft ekki hér á landi, en það hefur verið að kaupa sérfræðiþekkingu í íslenskum vísindamönnum og sérfræðingum á undanförnum árum fyrir langleiðina að 10 milljörðum. Þannig að þetta skiptir miklu máli.“

Í viðtalinu segir Illugi að hann ætli ekki að segja af sér og það sé ekkert fararsnið á honum út úr stjórnmálum.

Hér er hægt að lesa viðtalið við Illuga í heild

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert