Hálslón komið á yfirfall

Meðfylgjandi ljósmynd var tekin um kl. 14 í dag.
Meðfylgjandi ljósmynd var tekin um kl. 14 í dag. Ljósmynd/Landsvirkjun

Yfirborð Hálslóns er nú í 625 metra hæð yfir sjávarmáli og er Hálslón þar með komið á yfirfall. Fylling lónsins fór hægt af stað og voru horfur á fyllingu miðlunarlóna síðsumars slæmar.

Óvenju hlýtt veðurfar í septembermánuði orsakaði hinsvegar aukna jökulbráðnun og þar með aukið innrennsli í miðlanir Landsvirkjunar, líkt og kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun. 

Þegar vatn rennur á yfirfalli myndast fossinn Hverfandi við vestari enda Kárahnjúkastíflu niður að gljúfurbarminum og þaðan steypist vatnið 90-100 metra niður í Hafrahvammagljúfur. Fossinn er aflmikill og getur orðið vatnsmeiri en Dettifoss.

Staða Þórisvatns hefur einnig batnað verulega síðustu daga og nú vantar um 65 cm að það fyllist en yfirfallshæð þar er 579 metrar yfir sjávarmáli. Í Blöndulón vantar enn um 1,5 metra á fyllingu þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert