Virðast hafa verið í innbrotaleiðangri um Suðurland

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Eftir hádegi í gær handtóku lögreglumenn tvo menn 19 og 20 ára á bíl á Kirkjubæjarklaustri en bílnum hafði verið stolið í Reykjavík nóttina áður. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í bílnum fannst mikið magn af þýfi. Lögreglan á Suðurlandi segir frá þessu á Facebook síðu sinni.

Í framhaldi af handtökunni fundu lögreglumenn 19 ára stúlku sofandi í sumarbústað sem brotist hafði verið inn í skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Þar reyndist einnig vera mikið magn af ætluðu þýfi. 

Þremenningarnir eru grunaðir um að hafa stolið bifreiðinni í Reykjavík og lagt af stað í innbrotaleiðangur um Suðurland og á leið sinni brotist inn í á annan tug staða. Í færslunni kemur fram að enn séu að berast tilkynningar um innbrot og þjófnaði á leið þeirra frá Reykjavík um Suðurlandið.

Ekki reyndist unnt að taka skýrslu af fólkinu fyrr en eftir hádegi í dag vegna ástands þess en í framhaldi af því voru þau öll leidd fyrir dómara þar sem krafist var gæsluvarðhalds yfir þeim í tvær vikur og hefur dómari fallist á kröfu lögreglu þar um.
Eftir er mikil vinna við að heimfæra þýfi á brotavettvang og enn er óljóst hvort tilkynningar hafi borist um þá alla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert