Leit að Herði Björnssyni hefur enn ekki borið árangur en leitað hefur verið að honum á höfuðborgarsvæðinu síðan í gær. Ekkert hefur spurst til hans síðan aðfarranótt miðvikudagsins en þá var hann staddur á Laugarásvegi í Reykjavík.
Hefur lögreglan nú sent fjölmiðlum meðfylgjandi myndir af Herði og ítrekað hvatningu til almennings um að leita vel í og á sínum eignum, s.s. húsum, skúrum, bílum og görðum.
Talið er að hann sé klæddur í svartar buxur og gráa peysu líkt og er á myndum. Hörður er 188 cm á hæð, grannur, ljóshærður og með rautt skegg. Síðast er vitað um ferðir hans á Laugarásvegi í Reykjavík um kl. 04:00 þann 14. október sl. og var hann þá ekki í skóm.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Harðar eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í s. 444 1000 eða með skilaboðum á facebook síðu lögreglunnar.