Píratar njóta enn mest fylgis

Skjáskot/MMR

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina, stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokk, á tímabilinu 8. til 16. október 2015. Píratar mælast nú með 34,2% fylgi sem er innan vikmarka frá síðustu tveimur könnunum frá 3. og 24. september.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,7% borið saman við 25,3% í síðustu könnun þann 24. september. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 11,8% borið saman við 8,3% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 11,3% borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,4% borið saman við 10,3% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 6,5%, borið saman við 5,9% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%. 

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 31,4% en mældist 35,5% í síðustu mælingu og 34,4% í byrjun september.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 934 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 8. til .16 október 2015

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert