Þrír í haldi vegna heimilisofbeldis

Þrír gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna rannsóknar á heimilisofbeldi á þremur heimilum á svæðinu í gærkvöldi og nótt.

Mikill erill var hjá lögreglunni vegna ölvunar en engin stórmál komu upp né heldur alvarleg slys. Rúmlega fimmtíu mál höfðu verið skráð í dagbók lögreglu frá miðnætti til klukkan sex í morgun.

Sex ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og eða vímuefna.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var nóttinn einnig annasöm þar því farið var í 34 sjúkraflutninga og fimm verkefni á dælubílum. Meðal annars komu tvær minniháttar íkveikjur til kasta slökkviliðsins og heitavatnsleki.

 Nóttin var einnig annasöm hjá lögreglunni á Akureyri en víða um land hélt fólk upp á hrekkjarvökuna sem var í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert