Fjórum Bandidos-liðum vísað úr landi

Fjórum meðlimum bifhjólasamtakanna Bandidos var vísað úr landi í dag.
Fjórum meðlimum bifhjólasamtakanna Bandidos var vísað úr landi í dag. Ljósmynd/Matt McGee

Fjórum meðlimum vélhjólagengisins Bandidos sem komu til Íslands með flugi í gær var vísað úr landi í dag. Þetta staðfestir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Hann segir að fjórum EES-borgurum hafi verið vísað frá landi með skírskotun til allsherjarreglu og almannaöryggis en frávísunin var í höndum Útlendingastofnunar í samræmi við útlendingalög nr. 96 frá árinu 2002.

Ólafur segir að mennirnir fjórir hafi komið frá einu Norðurlandanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert