Kaupa strætó fyrir 200 milljónir

Strætó á Akureyri
Strætó á Akureyri Vikudagur/Þröstur Ernir

Akureyrarbær hyggst endurnýja strætisvagnaflotann á næstu árum. Í framkvæmdaáætlun bæjarins til næstu þriggja ára er gert ráð fyrir hátt í 200 milljónum til kaupa á strætisvögnum. Þetta kemur fram í frétt á vef Vikudags.

Þá er bærinn einnig að skoða að kaupa strætisvagna sem ganga fyrir vistvænni orkugjafa í
samstarfi við Vistorku. Gert er ráð fyrir 70 milljónum til kaupa á strætisvagni eða vögnum strax á næsta ári. Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert