Ekki gild ferðaskilríki

Vegabréf sem hafa verið framlengd teljast ekki gild ferðaskírteini frá deginum í dag, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá og lögreglunni á Suðurnesjum. 

Þjóðskrá Íslands vill benda á að samkvæmt reglum Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) þá er gerð sú krafa að vegabréf þurfi að vera véllesanlegt til að teljast gilt ferðaskilríki. Þessi krafa er ófrávíkjanleg frá 24. nóvember 2015.

Þau vegabréf sem íslenska ríkið gefur út uppfylla kröfur um að vera gild ferðaskilríki. Ef vegabréf hefur verið framlengt telst það ekki lengur véllesanlegt vegabréf og því ekki gilt sem ferðaskilríki.   
Eftir 24. nóvember 2015 er ekki hægt að ábyrgjast hvernig litið verður á framlengt vegabréf við landamæraeftirlit erlendis og er það alfarið á ábyrgð einstaklings að ferðast með slíkt vegabréf.

Neyðarvegabréf eru ekki véllesanleg en eru heimil samkvæmt reglum Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) enda skulu þau gefin út til að aðstoða íslenska ríkisborgara í neyð einna helst til að komast heim eða á næstu umsóknarstöð vegabréfa.

Þeir sem hafa nú undir höndum framlengd vegabréf og þurfa á flýtiútgáfu nýs vegabréfs að halda munu greiða fyrir slíka útgáfu sama gjald og um venjulega útgáfu væri að ræða til næstu áramóta gegn framvísun framlengds vegabréfs. 

Umsókn um vegabréf tekur að jafnaði 9 virka daga, þar er meðtalinn sendingartími á umsóknarstað eða til umsækjanda (innanlands). Athugið að ekki er hægt að sækja vegabréf í afgreiðslu Þjóðskrár Íslands nema þegar um hraðafgreiðslu er að ræða.

Biðröð eftir vegabréfi hjá sýslumanninum í Kópavogi
Biðröð eftir vegabréfi hjá sýslumanninum í Kópavogi mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert