25 sóttu um eitt starf

Horft yfir Reykjavíkurtjörn.
Horft yfir Reykjavíkurtjörn. mbl.is/Styrmir Kári

25 sóttu um stöðu skrifstofustjóra á Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, en starf rekstrar- og mannauðsmála var auglýst laust til umsóknar 31. október. Umsóknarfrestur var til og með 15. nóvember 2015.

Síðar drógu fjórir aðilar umsókn sína tilbaka.

Menningar- og ferðamálasvið fer með framkvæmd menningar- og ferðamála hjá Reykjavíkurborg. Sviðið hefur yfirumsjón með starfsemi Borgarbókasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Höfuðborgarstofu og Listasafns Reykjavíkur. Sviðið hefur jafnframt umsjón með málefnum Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, Listahátíðar í Reykjavík og Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir hönd Reykjavíkurborgar.  Menningar og ferðamálasvið sér um samninga, styrki og samskipti við lista- og menningarlífið og er borgaryfirvöldum til faglegrar ráðgjafar í þeim málaflokkum sem undir sviðið heyra.  

Umsækjendur um stöðuna eru:

Anna María Axelsdóttir, fjármálastjóri.
Áslaug Maack Pétursdóttir, MPM
Ásmundur R. Richardsson, deildarstjóri
Bergur Þór Steingrímsson, viðskiptafræðingur
Davíð Freyr Þórunnarson, framkvæmdastjóri
Garðar Svavar Gíslason, verkefnastjóri
Grétar Júníus Guðmundsson, blaðamaður
Guðmundur Eggert Finnsson, verkefnastjóri
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri
Huld Ingimarsdóttir, verkefnastjóri
Ingunn Sigurgeirsdóttir, rekstrarstjóri
Jódís Skúladóttir, lögfræðingur
Jón Gunnar Borgþórsson, viðskiptafræðingur
Magnús Bjarni Baldursson, framkv.stj./verkefnastj.
Matthías Einarsson, viðskiptafræðingur
Rannveig Guðmundsdóttir, viðskiptalögfræðingur
Rebekka Silvía Ragnarsdóttir, MBA
Ricardo Mario Villalobos, rekstrarstjóri
Sigrún Halldórsdóttir, mannauðsráðgjafi
Sonja Björk Ragnarsdóttir, vöruhönnuður og innanhússarkitekt
Svavar Jósefsson, verkefnastjóri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert