Loka Suðurlandsvegi við Reynisfjall

Það hefur verið ófært víða í dag.
Það hefur verið ófært víða í dag. mbl.is/Golli

Vegna ófærðar er verið að loka Suðurlandsvegi við Reynisfjall. Flutningabílar hafa verið að festast í Gatnabrún í kvöld og ákveðið hefur verið í samráði við Vegagerðina að loka veginum yfir fjallið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Ekki er vitað að svo stöddu hvenær opnað verður aftur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert