Fjölmargir reimuðu á sig skautana

Með öryggishjálma á höfði og skauta á fótum á Ingólfstorgi.
Með öryggishjálma á höfði og skauta á fótum á Ingólfstorgi. mbl.is/Árni Sæberg

Margt var um manninn á skautasvellinu á Ingólfstorgi í dag enda rétta veðrið: Kalt og logn. Fólk á öllum aldri renndi sér á svellinu undir dynjandi jólatónlist.

Svellið verður opið frá kl. 12 og fram á kvöld, alla daga fram til jóla. Það er frítt inn en hægt að leigja skauta á staðnum. Nán­ari upp­lýs­ing­ar er að finna hér.

Hér má sjá hvernig svellið var búið til - á aðeins sextíu sekúndum!

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert