„Akranes er fallegur bær“

Fegurðin er í fyrrirrúmi á myndskeiði Michals frá Akranesi.
Fegurðin er í fyrrirrúmi á myndskeiði Michals frá Akranesi. Skjáskot af YouTube

„Akranes er fallegur en vanmetinn bær,“ segir Michal Mogila, sem hefur síðustu tólf mánuði tekið myndskeið af Akranesi úr lofti. Hann hefur nú klippt það saman og deilt á YouTube.

Michal er pólskur og hefur búið á Akranesi síðustu átta ár. Fyrir fimm árum eignuðust hann og eiginkona hans stúlkuna Maju. Hann vinnur við vélvirkjun hjá Hamri en áhugamálin eru ljósmyndun og kvikmyndataka. Hann stefnir að því að gera heimildarmynd um Pólverja búsetta á Íslandi. 

„Ég elska að búa á Akranesi, segir Michal. „Ég reyni að kynna þennan bæ eins oft og ég get.“

Hér að neðan má sjá myndskeiðið hans um Akranes.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert