Sex jólabörn komu í heiminn

Fimm jólabörn fæddust á aðfangadag.
Fimm jólabörn fæddust á aðfangadag. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Fimm jólabörn komu í heiminn á fæðingardeild Landspítalans í gær og eru þau jafn mörg og á síðasta ári.

Fjögur þeirra komu í heiminn fyrir klukkan sex í gær en það fimmta kom í gærkvöldi.

Engin fæðing hefur verið á Landspítalanum í dag en von gæti verið á einu.

Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands fæddist eitt sannkallað jólabarn í gærkvöldi þar sem stúlka kom í heiminn rétt eftir klukkan sex. Þar hefur ein fæðing verið í gangi í morgun og er því að minnsta kosti von á einu barni.

Hvorki voru fæðingar á Akureyri né á Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupsstað í gær eða morgun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert