Lögreglumaður í gæsluvarðhaldi

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglumaður á höfuðborgarsvæðinu er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um brot í starfi, samkvæmt heimildum mbl.is. Maðurinn er starfsmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Málið er nú á borði ríkissaksóknara og rannsókn stendur yfir. Lögreglan og ríkissaksóknari vilja að öðru leyti ekki tjá sig um málið að svo stöddu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert