Hoffell vélarvana á leið til Íslands

Hoffell flutningaskip Samskipa
Hoffell flutningaskip Samskipa Samskip

Hoffell, skip Samskipa varð vélarvana um 160 sjómílum suðvestur af Færeyjum um hádegisbilið í gær á leið til Íslands. Helgafell, skip Samskipa, er við Hoffellið og í samskiptum við áhöfn þess. Varðskipið Þór mun draga Hoffellið til hafnar í Reykjavík, samkvæmt frétt á vef Samskipa. 

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni fór Þór af stað frá Íslandi í gærkvöldi en talið er að siglingin taki rúman sólarhring.

Ekki þótti ástæða til að lýsa yfir neyðarástandi um borð í Hoffelli þótt áhöfninni hafi ekki tekist að ræsa vélar skipsins að nýju. Áætlað er að varðskipið Þór nái til Hoffellsins á þriðjudaginn.

Hoffell er 5.500 tonna gámaskip. Í áhöfn þess eru 13 manns og amar ekkert að þeim. Á svæðinu eru ANA 8-10 vindstig og 6-7 metra ölduhæð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert