Óku ofan í brunn

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Tveir ökumenn urðu fyrir því óhappi að aka ofan í brunn sem var opinn á Aðalgötu í Keflavík. Önnur bifreiðin skemmdist það mikið að fjarlægja þurfti hana með dráttarbifreið.

Lögregla hafði þegar samband við Reykjanesbæ vegna málsins. Þá valt vörubifreið þegar verið var að hífa frístundahús upp á pall hennar. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum, að sögn lögreglu.

Auk óhappanna voru átta ökumenn staðnir að hraðakstri í umdæminu. Flestir þeirra voru á ferð eftir Reykjanesbraut. Sá sem hraðast ók mældist á 125 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert