Í gæsluvarðhaldi vegna kynferðisbrots

Maður var handtekinn í gærmorgun grunaður um kynferðisbrot á gistiheimili í Reykjavík. Að sögn Árna Þórs Sigmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns var maðurinn í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til fimmtudags. Kona lagði fram kæru vegna brotsins en það á að hafa átt sér stað aðfaranótt sunnudags.

Vísir sagði fyrst frá málinu í morgun og segir að brotið hafi átt sér stað á gistiheimilinu Room With A View á Laugavegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert