Sólveig leysir Jón Stefánsson af

Gradualekór Langholtskirkju
Gradualekór Langholtskirkju Ljósmynd/Langholtskirkja

Sólveig Anna Aradóttir kórstjóri mun leysa Jón Stefánsson kórstjóra af í Langholtskirkju til vors. 

Sólveig hefur lokið BA gráðu úr skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands og kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hún er sem stendur í kantorsnámi í Tónskóla Þjóðkirkjunnar. 

Í tilkynningu á Facebook-síðu Gradualekórs Langholtskirkju kemur fram að Jón glími við veikindi og því muni Sólveig Anna stjórna kórnum í hans stað fram til vors. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert