Töluverðar skemmdir í nótt

Töluverðar skemmdir urðu á byggðalínunni við Hof í Öræfum í nótt og er ekki gert ráð fyrir að viðgerð ljúki fyrr en í fyrsta lagi á morgun.

Viðgerðarhópar frá Landsneti eru komnir á vettvang og byrjaðir að undirbúa viðgerð við Hof þar sem þverslár í nokkrum möstrum eru brotnar og vírar slitnir. Jafnframt er verið að kanna ástand línunnar frekar þar sem mikil ísing er á henni, að því er fram kemur á vef Landsnets.

Þar segir ennfremur, að Prestbakkalína 1, milli Kirkjubæjarklausturs og Hornafjarðar hafi leyst út á tíunda tímanum í gærkvöldi og hafi raforkuflutningskerfi Landsnets verið rekið í svokölluðum eyjarekstri, eða tveimur aðskildum rekstrarhlutum, frá því að bilunin varð þar sem rof á byggðalínunni leiðir til óstöðugleika í raforkuflutningskerfinu vegna veikrar stöðu þess og dregur mjög úr afhendingaröryggi kerfisins.

„Strax og Prestbakkalína leysti út klukkan korter yfir níu í gærkvöldi var reynt að koma rafmagni á línuna aftur en án árangurs. Um klukkan tíu tókst að koma rafmagni á tengivirkið á Prestbakka og komst þá aftur rafmagn á hjá notendum í Vestur Skaftafellssýslu. Viðgerðarhópar frá Landsneti fóru á vettvang eldsnemma í morgun, strax og veður var gengið niður, og á tíunda tímanum fannst bilun á línunni við Hof í Öræfum. Flutningur á viðgerðarefni austur er hafinn og standa vonir til að viðgerð verði lokið í fyrsta lagi á morgun. Einnig er verið að kanna hvort frekari bilanir séu á Prestabakkalínu þar sem mikil ísing hefur sest á hana í óverðinu í gærkvöldi og í nótt,“ segir í tilkynningunni.

Truflanir á Vestfjörðum og Vesturlandi

„Óveðrið olli truflunum víðar í flutningskerfi Landsnets. Bolungarvíkurlína 1 sló út rétt upp úr klukkan fimm í gær. Línan er ekki komin í rekstur ennþá en þetta hefur engin áhrif á notendur. Unnið er að bilagreiningu.

Þá leysti Vatnshamralína 1, milli Hvalfjarðar og Borgarfjarðar, út á sjöunda tímanum í gær. Bilun fannst fljótt og var lagfærð og var línan komin aftur í rekstur rétt upp úr klukkan átta í gærkvöldi. Á meðan Vatnshamralína var út var byggðalínuhringurinn rofinn r úti og takmarkaður flutningur á rafmagni á milli landshluta,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert