Norsk skip lönduðu í Neskaupstað

Skipin í höfn með loðnu um borð.
Skipin í höfn með loðnu um borð. mbl.is/Líney

Þrjú norsk loðnuskip komu með afla til Neskaupstaðar í nótt og verður afli þeirra unnin í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Manon kom með 320 tonn og Birkeland og Torbas með 500 tonn hvor.

Þetta kemur fram á v

<a href="http://www.svn.is/" target="_blank">ef Síldarvinnslunnar</a>

. Þar segir ennfremur, að vinnsla á loðnu hafi hafist í fiskiðjuverinu í gær.

Aflann fengu norsku skipin út af Austfjörðum og segja skipstjórar þeirra að loðnu sé víða að sjá í töluverðum mæli. Gallinn sé hins vegar sá að hún hafi staðið djúpt þannig að þeir hafi átt í erfiðleikum með að ná henni í nótina. Í gær gekk nótaveiðin þó betur en áður og fengust þá allt upp í 700 tonna köst, að því er segir á heimasíðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert