„Þetta er það vitlausasta sem við höfum gert“

Haukur Oddsson forstjóri Borgunar
Haukur Oddsson forstjóri Borgunar mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er það vitlausasta sem við höfum gert, að selja þarna, það var hörmung að gera það, eftir á að hyggja,“ segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, í samtali við Fréttablaðið um sölu starfsmanna og stjórnenda Borgunar á 3,85 prósenta hlut í Borgun til Eignarhaldsfélagsins Borgunar í júlí á síðasta ári. 

Söluverðið miðaðist við að heildar­virði Borgunar væri 11 milljarðar króna. Söluverð Landsbankans á 31,2 prósenta hlut í Borgun, í nóvember 2014 átta mánuðum áður, miðaði við að Borgun væri metin á 7 milljarða króna. Landsbankinn seldi þá 25 prósenta hlut til Eignarhaldsfélagsins Borgunar á 1.751 milljón króna og 6,2 prósenta hlut til BPS á 433 milljónir króna. Því jókst virði Borgunar um 57 prósent á átta mánuðum.

Haukur segir í viðtali við Fréttablaðið hækkunina helst skýrast af aukinni eftirspurn eftir hlutabréfum á Íslandi á tímabilinu. Hlutabréfaverð á Íslandi hafi hækkað mikið á síðari hluta ársins 2014 og á árinu 2015.

Haukur Oddsson segir engu síður að kaupverðið staðfesti að forsvarsmenn Borgunar hafi ekki vitað að Visa Inc. hygðist nýta sér valrétt til að eignast Visa Europe. „Við höfðum ekki hugmynd um þetta þá, ekki frekar en aðrir,“ segir Haukur.

Rúmum tveimur mánuðum eftir að salan á hlut starfsmanna og stjórnenda gekk í gegn, tilkynnti Visa Inc. að það hygðist nýta sér valrétt til að kaupa Visa Europe á um 3.000 milljarða íslenskra króna. Borgun á von á tæplega 5 milljarða peningagreiðslu vegna þessa.

Sjá nánar á Vísi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert