Þorsteinn verður samgöngustjóri

Þorsteinn R. Hermannsson
Þorsteinn R. Hermannsson Ljósmynd/Reykjavíkurborg.

Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn í starf samgöngustjóra á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Þorsteinn mun taka við af Ólafi Bjarnasyni núverandi samgöngustjóra þegar hann lýkur störfum í byrjun sumars.

Þorsteinn er með B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington í Seattle, Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert