Fimmfaldur pottur næst

Lottó
Lottó

Enginn var með allar tölurnar réttar í lottóinu í kvöld og verður fyrsti vinningur því fimmfaldur í næstu viku. Tæpar 35 milljónir króna eru í pottinum nú þegar.

Fjórir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig rúmlega 120 þúsund krónur í vinning.  Af þeim er einn í áskrift, einn var keyptur í Happahúsinu í Kringlunni í Reykjavík, einn í Plúsmarkaðnum við Hátún í Reykjavík og einn í Olís á Dalvík.   

Einn var með allar Jókertölurnar réttar og í réttri röð og fyrir það fær hann 2 milljónir í vinning, miðinn var keyptur á lotto.is. 

Lottótölur kvöldsins eru: 4, 5, 22, 27 og 31. Bónustalan er 15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert