Rigning og rok um helgina

Það er vissara að fylgjast með niðurföllum og gera viðeigandi …
Það er vissara að fylgjast með niðurföllum og gera viðeigandi ráðstafanir þar sem vatnsveðrið er viðvarandi um helgina mbl.is/Golli

Hvöss suðvestanáttin er við völd enn sem komið er og má búast við hryðjuveðri víða á sunnan og vestanverðu landinu fram eftir degi, en heldur hægari vindi og bjartviðri á Austurlandi og Austfjörðum. Það lægir aðeins í dag en undir kvöld fer að blása af suðaustri og hlýna lítillega, einkum syðst á landinu.

Í nótt gera spár ráð fyrir suðaustan hvassviðri eða stormi, talsverðri rigningu og hláku en um hádegi á morgun snýst aftur í suðvestan storm með slydduéljum og síðan éljum. Átökin halda áfram fram á sunnudag, en þá hlýnar mikið þegar snýst enn og aftur til suðaustanáttar og hlýindunum fylgir talsverð rigning og afrennsli. Það er vissara að fylgjast með niðurföllum og gera viðeigandi ráðstafanir þar sem vatnsveðrið er viðvarandi um helgina, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.

Spáin fyrir næsta sólarhring:

Suðvestan 13-20 og él en 10-18 og þurrt að kalla NA-lands. Kólnandi veður. Lægir og dregur heldur úr éljum síðdegis en snýst í suðaustan 8-15 m/s með slyddu og síðan rigningu sunnan og suðaustantil í kvöld. Suðaustan 15-23 og rigning í nótt og fyrramálið en snýst í suðvestan 15-25 m/s með éljum síðdegis á morgun, hvassast vestanlands en þurrt að kalla á Norðurlandi. Dregur úr vindi S-til undir kvöld á morgun. Hiti um frostmark en hlýnar í nótt. Kólnar aftur seint á morgun.

Á sunnudag:

Sunnan 15-23 m/s með talsverðri eða mikilli rigningu og hlýindum, en áfram þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 4 til 10 stig.

Á mánudag:
Sunnan hvassviðri en heldur hægari norðvestantil. Rigning sunnan og suðaustanlands en þurrt að mestu annars staðar. Bætir í úrkomu um kvöldið. Milt í veðri.

Á þriðjudag:
Sunnan strekkingur en snýst í suðvestanátt síðdegis, fyrst vestantil. Rigning sunnan - og suðaustanlands en slydda vestantil og bjartviðri norðaustanlands. Hiti 1 til 4 stig austast, en annars um frostmark.

Á miðvikudag:
Fremur hæg suðlæg átt, ksýjað með köflum og úrkoma vesatantil en léttir til þegar líður á daginn. Kólnandi veður.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt og milt veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert